Varnarmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon var valinn í 25 manna landsliðshópinn sem mætir Frakklandi og Andorra í undankeppni EM.
Þrátt fyrir það er ekki ljóst hvort hann geti tekið þátt í leikjunum en hann meiddist á ökkla í leik með CSKA Moskvu í Evrópudeildinni í gær og yfirgaf leikvanginn með hækju.
Þrátt fyrir það er ekki ljóst hvort hann geti tekið þátt í leikjunum en hann meiddist á ökkla í leik með CSKA Moskvu í Evrópudeildinni í gær og yfirgaf leikvanginn með hækju.
Erik Hamren sagði á fréttamannafundi að Hörður færi í myndatöku síðar í dag og þá kæmi staðan a honum betur í ljós.
Hörður hefur leikið 26 landsleiki fyrir Ísland og skorað tvö mörk.
Athugasemdir