Þrítugur maður að nafni Ashley Smith er búinn að viðurkenna að hafa veist að Mesut Özil og Sead Kolasinac í tilraun til að ræna þá í júlí.
Atvikið átti sér stað í Hampstead hverfinu í London, 25. júlí, Smith er frá Archway hverfinu sem er skammt frá.
Hann viðurkenndi að hafa reynt að stela úrum leikmannana ásamt vini sínum Jordan Northover, 26 ára.
Það náðist myndband af tilrauninni og naut það mikilla vinsælda á veraldarvefnum. Þar eru ræningjarnir, vopnaðir hnífum og með mótorhjólahjálma, búnir að stöðva bifreið stórstjarnanna. Það er þá sem Kolasinac stekkur úr framsætinu og hrekur árásarmennina í burtu með berum höndum.
Footage has emerged of Sead Kolasinac fighting off a pair of knife-wielding attackers during an attempted robbery, Mesut Ozil was also involved in the incident.
— Sky Sports News (@SkySportsNews) July 25, 2019
Arsenal have confirmed both players were unharmed.
Athugasemdir