Það verður Íslendingaslagur í ensku úrvalsdeildinni á morgun þegar Burnley og Everton eigast við klukkan 14:00.
Guardian býst við því að Jóhann Berg Guðmundsson og Gylfi Þór Sigurðsson verði báðir í byrjunarliðum sinna liða.
Jóhann hefur verið frá vegna meiðsla síðan í ágúst en hann var í leikmannahópi Burnley um síðustu helgi. Hann var þá ónotaður varamaður en er nú orðinn alveg klár í slaginn.

Burnley er í 11. sæti með 9 stig en Everton er í 15. sæti með 7 stig.
Báðir eru Jóhann og Gylfi í íslenska landsliðshópnum sem opinberaður var í dag en framundan eru landsleikir gegn Frakklandi og Andorra í undankeppni EM.
Athugasemdir