Liverpool hefur fengið ákæru frá UEFA vegna áhorfenda sem hlupu inn á völlinn í 4-3 sigrinum gegn Red Bull Salzburg í Meistaradeildinni á miðvikudaginn.
Ein boðflennan fékk þó bolamynd af sér ásamt Trent Alexander-Arnold eins og sjá má á mynd sem fylgir fréttinni.
Ein boðflennan fékk þó bolamynd af sér ásamt Trent Alexander-Arnold eins og sjá má á mynd sem fylgir fréttinni.
Salzburg fékk einnig ákæru frá UEFA vegna hluta sem var kastað af stuðningsmönnum liðsins á leiknum.
Málin verða tekin fyrir 17. október.
Mohamed Salah skoraði sigurmarkið í umræddum leik en Salzburg hafði jafnað í 3-3 eftir að hafa lent þremur mörkum undir.
Athugasemdir