Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 04. október 2019 15:58
Elvar Geir Magnússon
Pochettino efast ekki um hollustu leikmanna
Mauricio Pochettino.
Mauricio Pochettino.
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, segist sannfærður um að liðið sé að leggja sig fram undir hans stjórn þrátt fyrir dapurt gengi að undanförnu.

Tottenham hefur aðeins unnið þrjá af fyrstu tíu leikjum í öllum keppnum og tapaði 7-2 gegn Bayern München í Meistaradeildinni. Þá tapaði liðið í vítaspyrnukeppni gegn Colchester í deildabikarnum í síðustu viku.

„Ég efast alls ekkert um að leikmenn vilji gera sitt allra besta til að vinna leiki. Þeir spila fyrir sig sjálfa, fjölskyldur sína, félagið og þjálfarateymið. Ég efast ekki um hollustu þeirra," segir Pochettino.

Ýmsir sparkspekingar telja að óvissan um framtíð leikmanna á borð við Christian Eriksen, Toby Alderweireld, Jan Vertonghen, Danny Rose og Victor Wanyama hafi haft neikvæð áhrif á hópinn.

„Ég held að það hafi ekki áhrif á frammistöðu manna þó einhverjir séu á lokaári samnings síns. Við erum allir í þessu saman og þurfum að finna leið til að komast aftur á sigurbraut," segir Pochettino.

Tottenham, sem er í sjötta sæti, mætir Brighton í hádegisleiknum á morgun.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner