Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 04. október 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Bayern tekur á móti Hoffenheim
Lewandowski er kominn með tíu mörk í sex fyrstu umferðunum.
Lewandowski er kominn með tíu mörk í sex fyrstu umferðunum.
Mynd: Getty Images
Paco Alcacer er næstmarkahæstur með fimm mörk.
Paco Alcacer er næstmarkahæstur með fimm mörk.
Mynd: Getty Images
Þjóðverjar búa sig undir síðustu helgina fyrir landsleikjahlé og byrjar boltinn að rúlla strax í kvöld þegar Hertha Berlin mætir Fortuna Düsseldorf.

Toppliðin mæta flest til leiks á morgun og er toppslagur á dagskrá í Freiburg þegar Borussia Dortmund kíkir í heimsókn.

Freiburg er með 13 stig eftir 6 umferðir, tveimur meira en Dortmund.

Topplið FC Bayern fær Hoffenheim í heimsókn á meðan RB Leipzig, sem hefur verið að misstíga sig síðustu vikur, á erfiðan útileik við Bayer Leverkusen.

Schalke og Köln eigast við í síðasta leik laugardagsins og mæta Alfreð Finnbogason og félagar í Augsburg til leiks á sunnudaginn.

Þeir heimsækja sterkt lið Borussia Mönchengladbach og þurfa að ná sér í stig eftir slaka byrjun á tímabilinu. Augsburg er aðeins með 5 stig eftir 6 umferðir.

Wolfsburg á svo leik við Union Berlin áður Eintracht Frankfurt og Werder Bremen eigast við í síðasta leik helgarinnar.

Stöðutöfluna er hægt að sjá hér fyrir neðan. Það vekur athygli að aðeins eitt stig skilur efstu sex liðin að.

Föstudagur:
18:30 Hertha Berlin - Düsseldorf

Laugardagur:
13:30 FC Bayern - Hoffenheim
13:30 Freiburg - Dortmund
13:30 Leverkusen - RB Leipzig
13:30 Paderborn - Mainz
16:30 Schalke - Köln

Sunnudagur:
11:30 Gladbach - Augsburg
13:30 Wolfsburg - Union Berlin
16:00 Frankfurt - Werder Bremen
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 29 25 4 0 74 19 +55 79
2 Bayern 29 20 3 6 82 36 +46 63
3 Stuttgart 29 20 3 6 67 34 +33 63
4 RB Leipzig 29 17 5 7 67 33 +34 56
5 Dortmund 29 16 8 5 57 34 +23 56
6 Eintracht Frankfurt 29 10 12 7 43 39 +4 42
7 Augsburg 29 10 9 10 47 46 +1 39
8 Freiburg 29 11 6 12 41 52 -11 39
9 Hoffenheim 29 10 6 13 49 57 -8 36
10 Heidenheim 29 8 10 11 42 50 -8 34
11 Gladbach 29 7 10 12 50 56 -6 31
12 Werder 29 8 7 14 36 49 -13 31
13 Union Berlin 29 8 5 16 25 45 -20 29
14 Wolfsburg 29 7 7 15 34 50 -16 28
15 Bochum 29 5 12 12 34 59 -25 27
16 Mainz 29 5 11 13 30 47 -17 26
17 Köln 29 4 10 15 23 51 -28 22
18 Darmstadt 29 2 8 19 28 72 -44 14
Athugasemdir
banner
banner
banner