Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 04. október 2019 16:49
Elvar Geir Magnússon
Zappacosta lengi frá
Mynd: Getty Images
Bakvörðurinn Davide Zappacosta hneig niður á æfingu í dag en hann skaddaði liðbönd á hægra hné.

Zappacosta, sem er 27 ára, er hjá Roma á lánssamningi frá Chelsea.

Hann náði aðeisn að spila tólf mínútur fyrir Roma en hann var að snúa aftur eftir meiðsli á kálfa.

Líklegt er að Roma sendi hann aftur til Chelsea án þess að leikmaðurinn hafi náð að byrja leik fyrir félagið.

Meiðslavandræði Roma hafa verið með hreinum ólíkindum í upphafi tímabils en Lorenzo Pellegrini, Henrikh Mkhitaryan, Diego Perotti og Cengiz Under hafa allir meiðst illa.

Sky Sport Italia segir að Zappacosta, sem á þrettán landsleiki fyrir Ítalíu, verði frá í 4-5 mánuði.
Athugasemdir
banner
banner
banner