Liverpool lagði Rangers að velli, 2-0, í 3. umferð í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld en það er Liverpool Echo sem gefur leikmönnum einkunnir fyrir frammistöðuna.
Átta leikmenn Liverpool fá átta fyrir frammistöðuna í kvöld, þar á meðal Trent Alexander-Arnold.
Hann hefur fengið mikla gagnrýni fyrir slaka frammistöðu á tímabilinu. Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, breytti leikkerfinu og kom Alexander-Arnold ágætlega frá því.
Hann skoraði fyrra mark Liverpool og var mjög stöðugur varnarlega áður en honum var skipt af velli.
Einkunnir Liverpool: Alisson (7), Alexander-Arnold (8), Joel Matip (8), Van Dijk (7), Tsimikas (6), Thiago (8), Henderson (8), Salah (8), Jota (7), Díaz (8), Nunez (8).
Varamenn: Firmino (6), Fabinho (6).
Athugasemdir