Arsenal mun leika Evrópudeildarleik á óvenjulegum tíma, klukkan 15:50 á miðvikudaginn.
Liðið heimsækir þá Vitoria SC í Portúgal en leikurinn verður sólarhring á undan hinum 23 leikjunum í Evrópudeildinni.
Ástæðan fyrir þessum furðulega leiktíma er sú að á fimmtudeginum leikur Braga gegn Besiktas. 24 kílómetrar eru milli heimavalla Vitoria og Braga.

Með því að spila leikina ekki á sama degi er UEFA að minnka álagið á yfirvöldum í Portúgal og létta á samgöngumálum.
Arsenal er á toppi F-riðils Evrópudeildarinnar með fullt hús að loknum þremur umferðum en Vitoria er stigalaust á botninum.
Athugasemdir