Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 04. nóvember 2019 14:07
Magnús Már Einarsson
Campbell og Hemmi breyta æfingum og banna sósur
Hemmi og Campbell í leik með Portsmouth á sínum tíma.  Southend mætir Portsmouth á morgun.
Hemmi og Campbell í leik með Portsmouth á sínum tíma. Southend mætir Portsmouth á morgun.
Mynd: Getty Images
Sol Campbell og Hermann Hreiðarsson eru byrjaðir að taka til hendinni hjá Southend í ensku C-deildinni. Campbell var ráðinn stjóri Southend á dögunum og Hermann aðstoðarstjóri.

Southend tapaði 1-0 gegn Sunderland um helgina eftir 3-1 tap gegn Ipswich í fyrsta leik undir stjórn Campbell.

Campbell og Hermann hafa breytt æfingatímum Southend en The Athletic segir frá þessu. Liðið æfði alltaf klukkan 10:30 á morgnanna en nú hefjast æfingar síðdegis, til að vera á svipuðum tíma sólarhrings og leikir liðsins.

Campbell og Hermann voru ekki ánægðir með formið hjá leikmönnum og í síðustu viku var bætt við aukaæfingum undir stjórn þolþjálfarans Tony Colbert. Colbert var á sínum tíma í þjálfarateymi Arsene Wenger hjá Arsenal í nokkur ár.

Þá hafa einnig verið gerðar breytingar í mötuneyti Southend en þar er ekki lengur boðið upp á tómatsósu og majónes með matnum.

Campbell og Hermann þurfa að byrja á að vinna í varnarleiknum en Southend hefur fengið 43 mörk á sig í sextán leikjum hingað til á tímabilinu. Southend er í dag átta stigum frá öruggu sæti í ensku C-deildinni en á morgun fara Campbell og Hermann á gamlar heimaslóðir þegar liðið heimsækir Portsmouth.
Stöðutaflan England 1. deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Portsmouth 45 27 13 5 76 41 +35 94
2 Derby County 45 27 8 10 76 37 +39 89
3 Bolton 45 25 11 9 83 48 +35 86
4 Peterboro 45 25 8 12 86 58 +28 83
5 Barnsley 45 21 12 12 81 63 +18 75
6 Lincoln City 45 20 14 11 65 38 +27 74
6 Cambridge City 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Oxford United 45 21 11 13 77 55 +22 74
8 Blackpool 45 21 10 14 63 45 +18 73
9 Stevenage 45 18 14 13 55 45 +10 68
10 Wycombe 45 16 14 15 59 55 +4 62
11 Leyton Orient 45 17 11 17 50 54 -4 62
12 Exeter 45 17 10 18 45 59 -14 61
13 Wigan 45 19 10 16 61 56 +5 59
14 Northampton 45 17 8 20 56 65 -9 59
15 Bristol R. 45 16 9 20 52 66 -14 57
16 Charlton Athletic 45 11 20 14 64 64 0 53
17 Reading 45 15 11 19 65 68 -3 50
18 Shrewsbury 45 13 9 23 34 64 -30 48
19 Cambridge United 45 12 11 22 39 61 -22 47
20 Burton 45 12 10 23 39 64 -25 46
21 Cheltenham Town 45 12 8 25 40 63 -23 44
22 Fleetwood Town 45 9 13 23 46 72 -26 40
23 Port Vale 45 10 10 25 41 74 -33 40
24 Carlisle 45 7 9 29 41 79 -38 30
24 Forest Green 46 6 9 31 31 89 -58 27
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner