Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 04. nóvember 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Crouch: Hefði misst 50 mörk út af löngum handleggjum
Mynd: Getty Images
Peter Crouch, fyrrum framherji Liverpool, Tottenham, Stoke og fleiri félaga, ákvað að slá á létta strengi eftir VAR umræðu helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Mark var tekið af Roberto Firmino, framherja Liverpool, gegn Aston Villa um helgina.

Á mynd sem enska úrvalsdeildin sendi frá sér á Twitter er dregin rauð lína sem sýnir að handakrikinn hafi verið millimetrum fyrir innan aftasta varnarmann Aston Villa.

„Ef ég hefði verið að spila með VAR þá hefðu löngu handleggirnir mínir gert mig rangstæðan í kringum 50 mörkum," sagði Crouch léttur í bragði á Twitter.


Athugasemdir
banner
banner