banner
   mán 04. nóvember 2019 16:01
Elvar Geir Magnússon
Kante snýr aftur
Kante á æfingu í dag.
Kante á æfingu í dag.
Mynd: Getty Images
Frank Lampard, stjóri Chelsea, hefur staðfest að N'Golo Kante sé orðinn klár í slaginn aftur og verði í leikmannahópnum gegn Ajax annað kvöld.

Hinn 28 ára gamli Kante meiddist á nára í upphitun á Laugardalsvelli fyrir leik Íslands og Frakklands 11. október.

Hollandsmeistarar Ajax heimsækja Chelsea í Meistaradeildinni á morgun.

„Hann er í hópnum svo hann er tilbúinn," sagði Lampard á fréttamannafundi í dag. Kante hefur aðeins spilað sex leiki í öllum keppnum á þessu tímabili.

Varnarmaðurinn Antonio Rudiger er farinn að æfa aftur með Chelsea en er þó ekki orðinn leikfær.

Chelsea og Ajax eru jöfn að stigum á toppi H-riðils Meistaradeildarinnar. Bæði lið eru með sex stig eftir þrjár umferðir. Valencia er með fjögur stig en Lille aðeins eitt.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner