Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 04. nóvember 2019 22:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lewandowski fer líklega í aðgerð eftir næsta deildarleik
Mynd: Getty Images
Robert Lewandowski þarf að fara í aðgerð á nára en meiðsli hafa verið að angra pólska framherjann í nokkurn tíma.

Lewandowski hefur verið sjóðheitur hjá Bayern Munchen á leiktíðinni og skorað 14 mörk í 10 deildarleikjum.

Lewandowski mun að öllum líkindum fara í aðgerðina eftir deildarleik Bayern gegn Dortmund um næstu helgi.

Pólverjinn mun því missa af lokalandsleikjum Póllands í undankeppninni fyrir EM en Pólland er nú þegar öruggt með sæti á lokamótinu.

Lewandowski verður líklegast klár í fyrsta eða annan deildarleikinn eftir landsleikjahlé.
Athugasemdir
banner