Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 04. nóvember 2019 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lundstram breyst úr lánsmanni í hjartslátt Sheffield United
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
John Lundstram hefur komið á óvart í ensku úrvalsdeildinni eins og lið hans, Sheffield United. Lundstram gerði tvö marka Sheffield í sigri á Burnley á laugardag.

Lundstram var óvænt í byrjunarliðinu í fyrsta leik Sheffield í deildinni. Lundstram fékk takmarkað að spila í fyrra og byrjaði einungis fimm leiki. Búist var við því að Lundstram yrði lánaður og myndi því leika með sínu 10. félagi á ferlinum.

Fáir bjuggust við því að Lundstram væri einn af aðalmönnunum í liði Sheffield United sem situr í 6. sæti úrvalsdeildarinnar sem nýliði.

„Ég hef lent í erfiðleikum en þetta hefur verið ferðalag sem ég myndi aldrei vilja breyta. Ég er á toppi ferilsins núna og vonandi get ég verið hér áfram."

„Í fyrra var ég ekki í myndinni en nú hafa hlutirnir breyst. Ég vann vel í mínum málum og það hefur skilað til baka."


Chris Wilder, stjóri Sheffield United, er ánægður með sinn mann. Hann segist alltaf hafa vitað af honum í hópnum en í fyrra hafi hann einungis notast við Oliver Norwood og John Fleck sem sitjandi miðjumenn.

Við þetta má bæta að Lundstram er vinsæll 'Fantasy leikmaður' en þar er hann skráður sem varnarmaður. Í vetur hefur hann einungis verið notaður framar á vellinum.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner