Michael Oliver mun dæma stórleik Liverpool og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni næsta sunnudag. Þetta eru tvö efstu lið deildarinnar.
Oliver er að margra mati langbesti dómari Englendinga. Paul Tierney verður sérstakur VAR-dómari leiksins.
Liverpool er sem stendur með sex stiga forystu á City.
Oliver er að margra mati langbesti dómari Englendinga. Paul Tierney verður sérstakur VAR-dómari leiksins.
Liverpool er sem stendur með sex stiga forystu á City.
Þá má geta þess að Mike Dean dæmir leik Chelsea og Crystal Palace og Jonathan Moss mun halda um flautuna í leik Manchester United gegn Brighton.
Athugasemdir