Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 04. nóvember 2019 10:05
Magnús Már Einarsson
Tottenham ætlar að bjóða Son hjálp sálfræðinga
Mynd: Getty Images
Tottenham ætlar að bjóða Son Heung-min að þiggja hjálp frá sálfræðingum eftir leik liðsins gegn Everton í gær.

Andre Gomes, miðjumaður Everton, ökklabrotnaði á skelfilegan hátt í gær í kjöfar þess að Son braut á honum.

Son fór aftan í Gomes en Portúgalinn virtist síðan meiðast þegar hann lenti í grasinu og í samstuði við Serge Aurier.

Son fékk rauða spjaldið en hann var eyðilagður eftir að hann sá meiðsli Gomes og fór að gráta á vellinum.

Eftir leikinn var Son í rusli inn í klefa en Tottenham ætlar að nýta sálfræðinga til að hjálpa honum að komast í gegnum þessa leiðinlegu lífsreynslu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner