Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 04. desember 2017 10:00
Magnús Már Einarsson
Carragher: Silva er bestur í sögu Man City
Magnaður.
Magnaður.
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher, sérfræðingur Sky Sports, segir að David Silva sé besti leikmaðurinn í sögu Manchester City.

Silva fagnaði nýjum samningi hjá Manchester City með því að skora sigurmarkið gegn West Ham í gær.

„Silva er besti leikmaður Manchester City frá upphafi. Einu vonbrigðin eru aldurinn hans. Hversu lengi mun hann spila? sagði Carragher eftir leikinn í gær.

„Hann er ásamt Thierry Henry, Dennis Bergkamp og Eric Cantona einn besti leikmaður sem við höfum átt í ensku úrvalsdeildinni."

„Hann er besti skapandi miðjumaður sem við höfum séð í deildinni. David Silva vill alltaf fá boltann og hann spilar eins gegn öllum liðum. Hann er hugrakkur bæði með og án bolta. Þvílíkur leikmaður."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner