Garth Crooks hjá BBC hefur skilað inn úrvalsliði helgarinnar í ensku úrvaldeildinni.
Manchester United á fjóra menn í liðinu eftir 3-1 útisigurinn á Arsenal. Chelsea á þrjá menn og Liverpool tvo.
Manchester United á fjóra menn í liðinu eftir 3-1 útisigurinn á Arsenal. Chelsea á þrjá menn og Liverpool tvo.
David De Gea (Manchester United) - Varði 14 skot gegn Arsenal og jafnaði þannig met í ensku úrvalsdeildinni.
Ashley Williams (Everton) - Öflugur í sigrinum á Huddersfield. Hefur stigið upp í síðustu leikjum eftir dapurt tímabil fram að því.
David Silva (Manchester City) - Hélt upp á nýjan samning með því að skora sigurmarkið gegn West Ham í gær.
Nemanja Matic (Manchester United) - Var tæpur vegna meiðsla fyrir leikinn gegn Arsenal en það var ekki að sjá á góðri frammistöðu hans á miðjunni.
Philippe Coutinho (Liverpool) - Skoraði á skemmtilegan hátt úr aukaspyrnu gegn Brighton og átti einnig stóran þátt í fimmta markinu.
Roberto Firmino (Liverpool) - Brasilíumaðurinn er í stuði þessa dagana. Skoraði tvö mörk gegn Brighton.
Athugasemdir