Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 04. desember 2018 18:00
Magnús Már Einarsson
Bale var hissa á að tapa gegn Salah
Markið hjá Bale.
Markið hjá Bale.
Mynd: Getty Images
Gareth Bale, leikmaður Real Madrid, segist hafa verið hissa á að hafa ekki unnið Puskas verðlaunin fyrir flottasta mark ársins.

Bale skoraði með stórkostlegri hjólhestaspyrnu gegn Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildarinnar síðastliðið vor.

Það mark var hins vegar ekki valið mark ársins heldur kaus almenningur mark sem Mohamed Salah skoraði fyrir Liverpool gegn Everton á síðasta tímabili.

„Já, ég var hissa í hreinskilni sagt. Hvað getur þú sagt?" sagði Bale.

„Þetta lætur verðlaunin verða aðeins minni þó að þetta hafi auðvitað verið frábært mark hjá Salah."
Athugasemdir
banner
banner
banner