Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 04. desember 2019 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ansu Fati búinn að skrifa undir samning
Mynd: Getty Images
Framherjinn efnilegi Ansu Fati er búinn að skrifa undir samning við Barcelona sem gildir í þrjú ár, eða þar til í júní 2022.

Söluákvæðið í samningi hans er farið úr 100 milljónum evra upp í 170 milljónir evra og mun það hækka enn frekar þegar hann skrifar undir atvinnumannasamning.

Fati má ekki skrifa undir samning sem atvinnumaður þessa stundina því hann er aðeins 17 ára gamall.

Hann hefur komið við sögu í níu deildarleikjum á tímabilinu og gerði í þeim tvö mörk. Hann fór gríðarlega vel af stað og komu bæði mörkin í þremur fyrstu leikjum hans fyrir félagið.
Athugasemdir
banner
banner