Fotbolti.net
04.12.19 - 23:36
Ívan Guðjón Baldursson

Einkunnir kvöldsins: Mane, Origi, Alli og Rashford bestir

Einkunnir kvöldsins: Mane, Origi, Alli og Rashford bestir
Canon

Mynd: Getty Images

Sky Sports hefur gefið leikmönnum einkunnir eftir leiki kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.
Sadio Mane var maður leiksins er Liverpool vann nágrannaslaginn gegn Everton 5-2. Mane lagði upp tvö mörk og skoraði eitt. Divock Origi fékk 9 í einkunn, jafn mikið og Mane, enda skoraði hann tvennu.

Gylfi Þór Sigurðsson bar fyrirliðaband Everton og fékk 5 í einkunn fyrir sinn þátt. Richarlison var eini leikmaður gestanna sem fékk yfir 6 í einkunn.

Liverpool: Adrian (7), Alexander-Arnold (7), Van Dijk (7), Lovren (8), Robertson (8), Wijnaldum (8), Milner (7), Lallana (7), Mane (9), Origi (9), Shaqiri (8)
Varamenn: Henderson (7)

Everton: Pickford (5), Digne (5), Sidibe (5), Holgate (5), Keane (5), Mina (4), Davies (4), Sigurðsson (5), Iwobi (4), Richarlison (7), Calvert-Lewin (6)
Varamenn: Bernard (6), Kean (5)



Á Old Trafford átti Manchester United heimaleik gegn Tottenham, þar sem Jose Mourinho mætti aftur á sinn gamla heimavöll ári eftir brottrekstur.

Rauðu djöflarnir stóðu uppi sem sigurvegarar og var Marcus Rashford maður leiksins, enda gerði hann bæði mörk heimamanna.

Dele Alli, sem skoraði eina mark gestanna, var besti maður Tottenham. Þeir voru einu leikmennirnir sem fengu yfir 7 í einkunn í stórleiknum.

Man Utd: De Gea (7), Wan-Bissaka (7), Lindelof (7), Maguire (7), Young (6), McTominay (6), Fred (7), James (6), Lingard (6), Greenwood (6), Rashford (8)

Tottenham: Gazzaniga (6), Aurier (5), Sanchez (5), Alderweireld (6), Vertonghen (6), Sissoko (5), Winks (6), Moura (5), Alli (8), Son (6), Kane (4)
Varamenn: Eriksen (5), Ndombele (5)



Mason Mount var þá maður leiksins er Chelsea lagði Aston Villa að velli.

Hann fær 8 í einkunn fyrir sinn þátt, rétt eins og liðsfélagar hans Tammy Abraham og Willian.

Chelsea: Kepa (7), Azpilicueta (7), James (7), Christensen (6), Zouma (7), Kante (7), Mount (8), Kovacic (6), Willian (8), Pulisic (7), Abraham (8).

Aston Villa: Heaton (7), Targett (6), Elmohamady (7), Mings (7), Konsa (6), Nakamba (6), McGinn (6), Grealish (6), Hourihane (5), Trezeguet (7), Wesley (5).
Varamenn: Douglas Luiz (6), Jota (6).
Einkunnir kvöldsins: Mane, Origi, Alli og Rashford bestir
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.