Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 04. desember 2022 17:34
Elvar Geir Magnússon
Sterling ekki með í kvöld af fjölskylduástæðum
Mynd: Getty Images
Raheem Sterling, leikmaður Chelsea, er ekki í leikmannahópi enska landsliðsins í kvöld af persónulegum ástæðum. Enskir fjölmiðlar segja að af fjölskylduástæðum verði Sterling ekki með í leiknum.

England mætir Senegal í 16-liða úrslitum en flautað verður til leiks klukkan 19:00.

Sterling var í byrjunarliði Englands í fyrstu tveimur leikjum HM en var hvíldur gegn Wales.

Á næstu mínútum verða byrjunarlið kvöldsins opinberuð en enskir fjölmiðlar segja að Marcus Rashford verði á bekknum þrátt fyrir að hafa skorað þrjú mörk á mótinu.

Phil Foden, Harry Kane og Bukayo Saka verða í sóknarlínunni ef fréttirnar reynast réttar. Kemur í ljós rétt á eftir.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner