Fotbolti.net
04.12.22 - 20:24
Brynjar Ingi Erluson

Þriðja markið komið og England örugglega á leið í 8-liða úrslit

Bukayo Saka kemur boltanum framhjá Mendy í markinu

Bukayo Saka kemur boltanum framhjá Mendy í markinu

Canon

Mynd: Getty Images

Englendingar eru komnir í þriggja marka forystu gegn Senegal í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í Katar en Bukayo Saka var að bæta við þriðja markinu.
Jordan Henderson og Harry Kane skoruðu fyrir England undir lok fyrri hálfleiks en það er alveg óhætt að segja að það hafi verið gegn gangi leiksins.

Senegal hafði átt tvö glæsileg færi áður en ekki tekist að nýta þau.

Henderson kom Englandi í 1-0 áður en Kane tvöfaldaði forystuna í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Jude Bellingham átti stóran þátt í báðum mörkunum.

Saka gerði svo þriðja markið á 57. mínútu. Phil Foden keyrði upp vinstri vænginn, kom honum fyrir á Saka sem skoraði af stuttu færi og staðan 3-0. Markið má sjá hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.