Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 05. janúar 2021 19:23
Ívan Guðjón Baldursson
Messi spilaði sinn 750. leik fyrir Barcelona
Mynd: Getty Images
Lionel Messi spilaði sinn 750. leik fyrir Barcelona er liðið lagði Huesca að velli í spænsku deildinni um helgina. Þetta var 500. deildarleikur hans í La Liga.

Messi er þar með aðeins 17 leikjum frá því að jafna félagsmet Xavi Hernandez sem spilaði 767 leiki á tíma sínum hjá Barca.

Messi ætti að bæta metið á þessu tímabili ef hann verður ekki fyrir meiðslum, en margt bendir til þess að argentínski fótboltasnillingurinn rói á önnur mið þegar samningur hans rennur út næsta sumar.

„Ég er ótrúlegt stoltur af ferli mínum hjá Barcelona," sagði Messi kátur.

Messi skoraði 644 mörk í þessum 750 leikjum. 524 leikir sigruðust, 138 enduðu með jafntefli og töpuðu Börsungar 88 leikjum með Messi í liðinu.
Athugasemdir
banner
banner