Fotbolti.net
05.01.23 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Messi tilbúinn í að ná markmiðunum með PSG

Messi tilbúinn í að ná markmiðunum með PSG
Canon

Mynd: EPA

Lionel Messi er mættur aftur í herbúðir PSG eftir að hafa fengið gott frí eftir að hafa hampað heimsmeistaratitlinum á HM í Katar í desember.

Messi deildi mynd á Instagram af sér á æfingasvæði PSG með verðlaunagrip af HM og sendi skilaboð til stuðningsmanna félagsins.

Þar segir hann að félagið sé klárt í slaginn fyrir seinni hluta tímabilsins og ætli sér að ná markmiðunum.

Liðið er með fjögurra stiga forskot á toppi frönsku deildarinnar en undanfarin ár hefur sú keppni nánast verið formsatriði og liðið sett allt púður í Meistaradeildina.

Það hefur hins vegar ekki gengið sem skildi. Liðið mætir Bayern Munchen í 16 liða úrslitunum en fyrri leikur liðanna fer fram þann 14 febrúar í París og 8. mars í Þýskalandi.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.