Fotbolti.net
05.01.23 - 16:26
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Ounahi færist nær Napoli

Ounahi færist nær Napoli
Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Azzedine Ounahi færist nær því að ganga í raðir Napoli. Ounahi var frábær með Marokkó á HM í Katar.

Þessi 22 ára leikmaður spilaði alla leiki Marokkó þar sem liðið hafnaði í fjórða sæti á mótinu.
Ounahi er hjá Angers í Frakklandi en frammistaða hans á HM vakti áhuga evrópskra félaga; þar á meðal Leicester City og Lyon.

Ítalskir fjölmiðlar segja að Napoli sé að leggja áherslu á að fá leikmanninn og færist nær samkomulagi við Angers. Möguleiki er á að Ounahi fari aftur til Angers á láni út tímabilið.

Napoli trónir á toppi ítölsku A-deildarinnar en liðið tapaði sínum fyrsta deildarleik í gær, gegn Inter.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Roma5+1113
2Inter5+713
3Lazio5+513
4Cagliari5+312
5Milan5+611
6Frosinone5+510
7Juventus5+410
8Como5+310
9Napoli5+17
10Sassuolo507
11Atalanta5-26
12Lecce5-56
13Udinese5-34
14Torino5-34
15Parma5-34
16Monza5-44
17Fiorentina5-64
18Bologna5-32
19Genoa5-71
20Venezia5-90
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.