Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 05. febrúar 2020 21:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Grikkland: PAOK í bílstjórasætinu eftir fyrri leikinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
PAOK 2-0 Panathinaikos

Sverrir Ingi Ingason var í byrjunarliði PAOK í kvöld og lék allan leikinn þegar liðið lagði Panathinaikos í fyrri leik liðanna í gríska bikarnum.

Komið er í 8-liða úrslit bikarkeppninnar og er PAOK í góðri stöðu fyrir seinni leikinn. Í kvöld var leikið á heimavelli PAOK. Vierinha kom heimamönnum yfir a 34. mínútu með marki úr vítaspyrnu og það var svo Fernando Varela, hinn miðvörður PAOK í kvöld sem skoraði seinna mark liðsins á 72. mínútu.

PAOK, sem er ríkjandi bikarmeistari, heimsækir Panathinaikos eftir viku í seinni leik liðanna.
Athugasemdir
banner
banner