Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 05. febrúar 2020 13:30
Elvar Geir Magnússon
Morelos: Liverpool veit af mér
Alfredo Morelos.
Alfredo Morelos.
Mynd: Getty Images
Alfredo Morelos, sóknarmaður Rangers í Glasgow, á sér greinilega þann draum að spila fyrir Liverpool. Kólumbíumaðurinn hefur skorað 76 mörk í 128 leikjum fyrir Rangers síðan hann kom til félagsins 2017.

Agavandamál hafa þó sett sinn skugga en hann hefur alls fengið sjö rauð spjöld á þessum tímakafla.

Búist er við því að félög muni reyna að kaupa þennan 27 ára leikmann í sumar.

„Ég held að Liverpool viti alveg af mér. Við erum með þjálfara sem spilaði lengi með Liverpool. Ég tel að hann eigi vini og stjórnarmenn sem horfi á leikina okkar. Það hvetur mann til dáða," segir Morelos.

„Ef Guð vill að ég fari í eitthvað frábært félag þá mun það gerast."
Athugasemdir
banner
banner
banner