Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 05. febrúar 2020 20:10
Aksentije Milisic
West Brom gerir grín að stuðningsmanni Newcastle
Maximin fagnar markinu í gær.
Maximin fagnar markinu í gær.
Mynd: Getty Images
Newcastle lagði Oxford að velli í gær í enska bikarnum en liðið þurfti framlenginu til þess. Það var Allan Saint-Maximin sem tryggði sigurinn með glæsilegu marki í framlengingunni.

Stuðningsmenn Newcastle fögnuðu vel og innilega á pöllunum en einn þeirra gekk svo langt að hann beraði kynfæri sín.

Newcastle mætir West Bromwich Albion í næstu umferð en West Brom staðfesti leikinn á twitter í gær og lét félagið einnig smá skilaboð fylgja með til stuðningsmannsins.

„Við viljum minna stuðningsmenn Newcastle á það að The Hawthorns er völlur laus við vindmyllur," segir félagið.



Athugasemdir
banner
banner