Napoli vill kaupa Dragusin - Greenwood kostar 50 milljónir punda - Man Utd vill Frenkie de Jong - Arsenal setur sjö leikmenn á sölu - Mbappe kynntur í...
   mán 05. febrúar 2024 10:03
Elvar Geir Magnússon
Ísland leikur við England á Wembley í júní
Arnór Sigurðsson og Orri Steinn Óskarsson.
Arnór Sigurðsson og Orri Steinn Óskarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ hefur tilkynnt það að íslenska karlalandsliðið munu mæta Englandi í vináttulandsleik sem fram fer á Wembley í Lundúnum föstudagskvöldið 7. júní.

Leikurinn er hluti af undirbúningi enska liðsins fyrir lokakeppni EM í Þýskalandi. Íslenska liðið mætir Ísrael í fyrri umspilsleik um sæti í lokakeppni EM 2024 þann 21. mars. Sigurvegarinn í þeim leik mætir annað hvort Bosníu-Hersegóvínu eða Úkraínu 26. mars í úrslitaleik um sæti í lokakeppni EM 2024 í sumar.

Ísland og England hafa mæst fimm sinnum áður í A landsliðum karla og þar af einu sinni áður á Wembley. Ísland hefur unnið einn leik, en það var þegar liðin mættust í lokakeppni EM 2016 í Frakklandi.

Jafntefli varð niðurstaðan í fyrstu viðureign liðanna, á Laugardalsvelli í júní 1982. Síðustu tveir leikir liðanna voru í Þjóðadeildinni árið 2020, en þar unnu Englendingar báða leikina.
Athugasemdir
banner
banner