Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 05. mars 2020 23:12
Brynjar Ingi Erluson
Ighalo: Mér er sama hvað aðrir segja
Odion Ighalo fagnar gegn Derby í kvöld
Odion Ighalo fagnar gegn Derby í kvöld
Mynd: Getty Images
Nígeríski framherjinn Odion Ighalo var í skýjunum eftir 3-0 sigur Manchester United á Derby í enska bikarnum í kvöld en hann skoraði tvö mörk í sigrinum.

Ighalo skoraði fyrra markið undir lok fyrri hálfleiks og gerði þá út um leikinn með þriðja marki liðsins þegar tuttugu mínútur voru eftir.

Hann er kominn með þrjú mörk fyrir liðið frá því hann kom á láni í janúar en það voru þó margir spekingar sem efuðust þessi félagaskipti.

„Ég er ánægður og vil bara þakka liðinu fyrir harða baráttu í þessum leik," sagði Ighalo.

„Ég held ótrauður áfram á meðan liðsfélagarnir, stjórinn og stuðningsmennirnir hafa trú á mér. Mér er sama hvað aðrir segja," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner