Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 05. apríl 2021 19:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Neville: Litu út eins og lítil mafía sem vildi ekki vera þarna
Lacazette og Aubameyang voru fremstir á vellinum
Lacazette og Aubameyang voru fremstir á vellinum
Mynd: Getty Images
„Þetta hringdi viðvörunarbjöllum hjá mér. Mér leið ekki vel í hálfleik á laugardaginn með það sem ég hafði séð. Undir lok leiks gerði ég svolítið sem ég er ekki vanur að gera. Venjulega fer ég strax í burtu af vellinum en ég sat eftir í nokkrar mínútur og ræddi við Martin Tyler," sagði Gary Neville í Monday Night Football í kvöld.

Neville talar um það sem hann sá á Emirates leikvanginum þegar Liverpool vann Arsenal 0-3.

„Mér leið ekki vel með það sem ég sá. Ég man eftir álíka eftir að hafa horft á QPR og Sunderland fyrir nokkrum árum og svo í eitt eða tvö skipti þegar ég horfði á Chelsea þar sem mér fannst liðið vera að snúast gegn þjálfaranum."

„Þar sem ég sat á vellinum á laugardag fannst mér nokkrir leikmenn framarlega á velllinum í liði Arsenal líta út eins og lítil mafía. Þetta leit út eins og lítill hópur leikmanna sem vildi ekki vera þarna og var ekki sammála því sem þjálfarann lagði upp með."

„Þjálfarinn leit fyrir að vera búinn að fá nóg af þeim, ákveðinn augnsvipur. Við þekkjum fótboltann og við vitum hvenær leikmenn hafa ekki áhuga,"
sagði Neville.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var í sjokki eftir leikinn og var mjög ósáttur með frammistöðu leikmanna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner