Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 05. maí 2020 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Man Utd á eftir að taka ákvörðun varðandi Henderson
Mynd: Getty Images
Manchester United á eftir að taka ákvörðun varðandi framtíð markvarðarins Dean Henderson, sem hefur verið lykilmaður í spútnik liði enska úrvalsdeildartímabilsins Sheffield United.

Henderson er hjá Sheffield á lánssamningi til 30. júní en nú er ljóst að ef tímabilið fer aftur af stað þá mun það teygja sig langt framyfir júní.

Sheffield hefur því sent beiðni til Man Utd um að fá að halda markverðinum út tímabilið. Sky Sports telur Rauðu djöflana vera ólíklega til að samþykkja það.

Man Utd er í Evrópusæti sem stendur, þó aðeins tveimur stigum fyrir ofan Sheffield sem á leik til góða. Það yrði mikill missir fyrir Sheffield að spila lokakaflann án Henderson.
Athugasemdir
banner
banner
banner