Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 05. maí 2020 06:00
Aksentije Milisic
West Ham að skáka Spurs og Chelsea í baráttu um framherja
Mynd: Getty Images
Samkvæmt frönskum fjölmiðlum er West Ham að hafa betur gegn Spurs og Chelsea í baráttunni um Serhou Guirassy, framherja Amiens.

West Ham reyndi að kaupa kauða í janúar glugganum en það tókst ekki en liðin hafa haldið viðræðum áfram í kjölfarið. Amiens vill fá fimmtán milljónir punda fyrir leikmanninn en hann er samningsbundin félaginu til 2022.

Amiens féll úr frönsku úrvalsdeildinni eftir að tilkynnt var að tímabilinu sé lokið og að stöðutaflan haldi sér. Því þarf félagið að selja Guirassy.

Guirassy skorað níu mörk í 23 leikjum í deildinni í vetur og var hann einn af fáu ljósu punktum í liði Amiens. Hann skoraði gegn liðum á borð við PSG, Monaco, Lille og Marseille.
Athugasemdir
banner
banner