Fotbolti.net
05.05.21 - 22:01
Hafliði BreiðfjörðBogi Sigurbjörnsson

Óskar Smári: Amber var frábær

Auglýsing
Óskar Smári var hjá Stjörnunni á síðasta ári.

Óskar Smári var hjá Stjörnunni á síðasta ári.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Auðvitað er svekkjandi að vera komin með 1-0 sigur á 91. mínútu og fá svo svona mark á sig," sagði Óskar Smári Haraldsson annar þjálfara Tindastóls eftir 1 - 1 jafntefli gegn Þrótti í Pepsi Max-deild kvenna í kvöld.
„Ég á eftir að sjá betur hvort það sé aukaspyrna eða ekki. Þetta er svekkjandi en að sama skapi flott frammistaða hjá stelpunum. Þær gáfu allt í þetta," bætti hann við.

„Við skildum allt eftir á vellinum og áttu mjög flottan fyrri hálfleik. Við erum ennþá að komast í takt við þetta tempó. Það dróg vel af okkur í seinni en Amber (markvörður) gerði vel og var frábær. Ég er stoltur af liðinu."

Nánar er rætt við Óskar Smára í sjónvarpinu hér að ofan. Hann ræðir næsta leik gegn Fylki sem tapaði 9-0 gegn Breiðabliki í gær.

„Fylkisliðið er hörkulið með frábæran þjálfara og góðan mannskap. Þær lenda bara í á vegg á móti Breiðabliki sem eru Íslandsmeistarar. Þær mæta því sennilega brjálaðar á móti okkar á Fylkisvöll, það verður mjög erfiður leikur."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.