Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 05. júní 2021 15:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
2. deild: Reynir setti 5 gegn Völsungi - Eitt beint úr horni
Reynissigur
Reynissigur
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Reynir 5 - 1 Völsungur

Fjórir leikir fara fram í 2. deild karla í dag. Einum leik er þegar lokið. Reynir Sandgerði vann öruggan sigur á Völsungi

Reynir fékk Völsung í heimsókn í dag. Hörður Sveinsson kom heimamönnum yfir úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks og þannig var staðan í hálfleik.

Heimamenn komust í 2-0 með marki frá Magnúsi Þóri Matthíassyni áður en gestirnir minnkuðu muninn aðeins mínútu síðar og var Kifah þar á ferðinni. Hörður kom heimamönnum svo í 3-1 og Kristófer Páll Viðarsson skoraði fjórða markið.

Elfar Máni Bragason nelgdi siðan síðasta naglann í kistu Völsungs manna með marki beint úr hornspyrnu á 95. mínútu leiksins.

Markið úr hornspyrnunni má sjá hér

Athugasemdir
banner
banner
banner