Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 05. júní 2021 23:30
Victor Pálsson
Ekki sannfærður um Coutinho og vill ekki sjá hann koma
Aftur til Englands?
Aftur til Englands?
Mynd: Getty Images
Nigel Winterburn, goðsögn Arsenal, vill ekki sjá Philippe Coutinho til félagsins í sumar miðað við launakröfur og frammistöðu síðustu ár.

Coutinho var magnaður fyrir Liverpool á sínum tíma en eftir félagaskipti til Barcelona hefur allt legið niður á við.

Winterburn býst við að Brassinn vilji háan launapakka og segir Arsenal vera með leikmenn sem geta leyst sömu stöðu.

„Ég myndi ekki fara þennan veg, við erum með marga unga leikmenn sem eru að stíga upp," sagði Winterburn um miðjumanninn.

„Það er nema hann sé á réttum launum og að það sé möguleiki á að koma honum inn í liðið, þá er það möguleiki."

„Það hefur verið talað um þetta svo mikið svo ég trúi þessu ekki. Coutinho var mjög góður hjá Liverpool en síðan þá hef ég ekki verið hrifinn og ég er ekki sannfærður um hann."
Athugasemdir
banner
banner