Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 05. júní 2021 22:35
Victor Pálsson
Giroud tók ekki illa í ummæli Benzema - Lofar að kíkja í Go-Kart
Mynd: EPA
Olivier Giroud lofar því að kíkja í Go-kart með Karim Benzema ef Frakkland vinnur Evrópumeistaramótið í sumar.

Benzema er mættur aftur í landsliðið eftir margra ára fjarveru en hann skaut hressilega á Giroud á síðasta ári.

Benzema líkti sjálfum sér við Formúlu 1 kappakstursbíl og talaði um Giroud sem Go-kart bíl á sama tíma. Að það væri ekki hægt að líkja þeim saman.

Giroud tók ekki illa í þessi ummæli landa síns og hafði gaman að þeim á þessum tíma.

„Það er engin ástæða til að rífast við Karim. Ég hló að þessum ummælum meira en eitthvað annað," sagði Girous.

„Ég setti mig í hans spor. Það er ekki auðvelt að koma svona til baka. Þú verður að geta fyrirgefið og sleppt gremju."

„Ef við vinnum þá skellum við okkur báðir í Go-Kart. Það væri frábær ljósmynd!"
Athugasemdir
banner
banner