Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 05. júní 2021 14:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Henderson byrjaður að æfa á fullu
Mynd: Getty Images
Enski landsliðsmaðurinn Jordan Henderson hefur verið að kljást við meiðsli á nára. Hann missti af æfingaleik liðsins gegn Austurríki á miðvikudaginn.

Hann átti að taka þátt í leiknum gegn Austurríki en fann fyrir einhverjum óþægindum um morguninn og var ákveðið að hann myndi ekki spila gegn Austurríki.

Henderson er hinsvegar farinn að æfa af fullum krafti og er búist við því að hann muni taka þátt í síðasta æfingaleik liðsins fyrir EM gegn Rúmeníu á morgun.

Englendingar eru með Króötum, Skotum og Tékkum í riðli á EM og fyrsti leikur þeirra er gegn Króötum sunnudaginn 13. júní.
Athugasemdir
banner
banner
banner