Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. júní 2021 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Vel gert Fanndís"
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Fanndís Friðriksdóttir spilaði 90 mínútur þegar Valur sló út Völsung í Mjólkurbikar kvenna í vikunni.

Fanndís eignaðist sitt fyrsta barn í febrúar. Fanndís spilaði fyrstu fjóra leiki Vals í fyrra áður en hún dró sig í hlé.

Hún er núna mætt aftur sem eru mjög góðar fréttir fyrir Val. Hún skoraði gegn Völsungi.

„Hún mætti með litlu músina sína, fjögurra mánaða, og spilaði 90 mínútur og setti mark. Það er helvíti vel gert," sagði Lilja Dögg Valþórsdóttir.

„Ég held að hún hafi skorað með því að taka boltann á kassann og skora," sagði Mist Rúnarsdóttir. „Þvílíkt gleðilegt að sjá hana koma aftur og gott fyrir Valsliðið, landsliðið og alla."

„Ég hugsa til baka um sjálfa mig eftir fjóra mánuði, vel gert Fanndís," sagði Björk Björnsdóttir.

Hægt er að hlusta á allan Heimavöllinn hér að neðan.
Heimavöllurinn: Írarnir koma, U19 í þjálfaraleit og bikarblaður
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner