Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 05. júlí 2018 18:15
Elvar Geir Magnússon
Búist við því að Stuani verði í framlínunni með Suarez í fjarveru Cavani
Stuani byrjar líklega hjá Úrúgvæ á morgun.
Stuani byrjar líklega hjá Úrúgvæ á morgun.
Mynd: Getty Images
8-liða úrslit HM í Rússlandi fara af stað klukkan 14 á morgun þegar Frakkland og Úrúgvæ eigast við.

8-liða úrslit:
06.07 - 14:00 Úrúgvæ - Frakkland
06.07 - 18:00 Brasilía - Belgía
07.07 - 14:00 Svíþjóð - England
07.07 - 18:00 Rússland - Króatía

Talið er að hinn sjóðheiti Edinson Cavani muni missa af leiknum vegna kálfameiðsla sem hann hlaut í sigrinum gegn Portúgal.

Fjölmiðlar í Úrúgvæ reikna með því að Christian Stuani, fyrrum framherji Middlesbrough, muni byrja í hans stað. Stuani er nú hjá Girona á Spáni.

Hjá Frökkum tekur Blaise Matuidi miðjumaður út leikbann. Talið er líklegast að Corentin Tolisso spili í hans stað en Tolisso byrjaði fyrsta leik Frakka á HM, gegn Ástralíu.

Frakkland og Úrúgvæ hafa þrisvar mæst á HM, en þetta verður þó í fyrsta sinn sem þjóðirnar etja kappi í útsláttarkeppninni.

Sjá einnig:
Þessir verða í banni í undanúrslitum ef þeir fá gult í 8-liða
Athugasemdir
banner
banner
banner