Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 05. júlí 2018 15:30
Magnús Már Einarsson
Griezmann mætir góðum vinum frá Úrúgvæ
Antoine Griezmann.
Antoine Griezmann.
Mynd: Getty Images
Það verður áhugaverð rimma á morgun þegar Antoine Griezmann framherji Frakka mun kljást við Diego Godin og Jose Gimenez varnarmenn Úrúgvæ í leik liðanna í 8-liða úrslitum HM.

Godin og Gimenez eru liðsfélagar Griezmann hjá Atletico Madrid og miklir vinir hans. Godin er meðal annars guðfaðir dóttur Griezmann.

Þegar Úrúgvæ tryggði sér sæti á HM í fyrra mætti Griezmann á flugvöllinn í Madrid til að taka á móti þeim með úrúgvæska fánann. Sjálfur segist Griezmann vera Úrúgvæi að hluta til.

„Þetta er land sem ég elska og þetta verður mjög tilfinningaþrungið fyrir mig," sagði Griezmann um leikinn á morgu.

Nahitan Nandez, miðjumaður Úrúgvæ sagði: „Griezmann er mikið fyrir Úrúgvæ og segist sjálfur vera Úrúgvæi. Þetta verður sérstakur leikur fyrir hann og okkur. Ég vona að hann hegði sér vel inni á vellinum og muni að hann er hálfur Úrúgvæi."
Athugasemdir
banner
banner
banner