Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 05. júlí 2018 13:00
Elvar Geir Magnússon
Þrátt fyrir mörkin sex fær Kane litla þjónustu
Harry Kane.
Harry Kane.
Mynd: Getty Images
Oliver Kay, íþróttablaðamaður Times, bendir á það í grein sinni að þrátt fyrir mörkin sex sem Harry Kane hefur skorað á HM hafi hann í raun fengið litla þjónustu frá mönnunum í kringum sig.

Mörkin sex hafa komið úr aðeins níu skotum en til að setja það í samhengi hefur Neymar átt 24, Cristiano Ronaldo 21, Lionel Messi 17 og Edinson Cavani 16.

Af mörkunum sex hafa þrjú komið af vítapunktinum, tvö eftir hornspyrnur og eitt sem breytti á slysalegan hátt um stefnu.

Úr opnum leik hefur Kane fengið úr sáralitlu að moða.

Kay telur að ef England ætli sér alla leið í Rússlandi verði leikmenn á borð við Jesse Lingard, Dele Alli og Raheem Sterling að fara að skapa meira.

Kane hefur aðeins fengið 79 sendingar á mótinu, flestar með bakið í markið. Hann hefur fengið 10 frá Lingard og sjö frá Alli og Sterling.
Athugasemdir
banner
banner
banner