Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 05. júlí 2019 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Albert Brynjar handarbrotnaði gegn Þór
Albert í leik með Fjölni í sumar.
Albert í leik með Fjölni í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert Brynjar Ingason var ekki í leikmannahópi Fjölnis sem mætti Leikni í Inkasso-deild karla í gærkvöldi. Leikurinn endaði með 2-0 sigri Fjölnismanna.

Hann meiddist í 4-0 sigrinum gegn Þór Akureyri um síðustu helgi.

„Hann meiddist í síðasta leik gegn Þór, handarbrotnaði og við eigum eftir að fá betur úr því skorið hversu slæmt það er – hversu lengi hann verður frá, það kemur í ljós," sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, eftir sigurinn í gærkvöldi.

Albert Brynjar var fenginn til Fjölnis frá Fylki fyrir tímabilið. Hann er kominn með fjögur mörk í níu leikjum í Inkasso-deildinni í sumar.

Fjölnir er á toppnum í Inkasso-deildinni. Liðið er með 22 stig eftir að hafa spilað 10 leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner