Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 05. júlí 2019 15:30
Magnús Már Einarsson
Axel Tuanzebe framlengir við Man Utd
Mynd: Getty Images
Axel Tuanzebe hefur framlengt samning sinn við Manchester United til ársins 2022.

Axel spilaði sinn fyrsta leik með aðalliði Manchester United árið 2017 en í fyrra var hann á láni hjá Aston Villa.

Hinn 21 árs gamli Axel spilaði 25 leiki í Championship deildinni og hjálpaði Aston Villa upp í úrvalsdeildina.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, hefur trú á Axel fyrir framtíðina og hefur nú verðlaunað hann með nýjum samningi.

„Ég kann að meta traustið sem félagið sýnir mér og vil endurgjalda það með frammistöðum innan vallar," sagði Axel.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner