Cagliari vill bjóða Nicolo Barella nýjan samning með 50 milljóna evra riftunarákvæði.
Inter vill fá þennan 22 ára miðjumann sem einnig hefur verið orðaður við Roma en Roma hefur dregið sig úr baráttunni.
Barella vill ganga í raðir Inter en félaginu gengur erfiðlega að ná samkomulagi við Cagliari.

Barella hefur leikið sjö landsleiki fyrir Ítalíu og skorað tvö mörk.
Antonio Conte var á dögunum ráðinn þjálfari Inter.
Inter endaði í fjórða sæti í ítölsku A-deildinni á síðasta tímabili og verður því með í Meistaradeildinni á komandi tímabili.
Athugasemdir