Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   fös 05. júlí 2019 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrrum leikmenn Man Utd taka við U23 liði félagsins
Neil Wood
Neil Wood
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur ráðið Neil Wood sem nýjan þjálfara U23 liðs félagsins. Honum til aðstoðar verður Quinton Fortune.

Wood og Fortune eru báðir fyrrum leikmenn félagsins. Wood hóf feril sinn hjá Manchester United, í varaliðinu þar. Hann lék aldrei fyrir aðalliðið. Fortune er fyrrum landsliðsmaður Suður-Afríku, en hann lék fyrir aðallið United á árunum 1999 til 2006.

Wood er 36 ára, en hann hefur starfað í akademíu United frá 2014 eftir að hafa áður þjálfað hjá Aston Villa.

Ricky Sbragia var rekinn sem stjóri U23 liðs United í maí og var talið að Warren Joyce, fyrrum þjálfari liðsins, myndi snúa aftur. Nú er hins vegar ljóst að svo verður ekki.

Auk Wood og Fortune mun Nicky Butt, yfirmaður unglingaakademíu United, taka að sér meira hlutverk hjá U23 liðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner