Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 05. júlí 2019 16:30
Magnús Már Einarsson
Liverpool kvartar yfir Lazio
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur lagt fram kvörtun til FIFA þess efnis að Lazio hafi rætt ólöglega við framherjann Bobby Adekanye.

Hinn tvítugi Bobby skrifaði undir hjá Lazio í vikunni en samningur hans hjá Liverpool rann út um mánaðarmótin.

Liverpool telur að Lazio hafi rætt ólöglega við Bobby síðastliðinn vetur en samkvæmt reglum FIFA má ekki tala við leikmenn sem eru yngri en 23 ára fyrr en samningur þeirra rennur út.

Liverpool bauð Bobby nýjan samning og félagið mun því fá 242 þúsund pund í uppeldisbætur.

FIFA gæti hins vegar skoðað hvort Lazio hafi brotið af sér eftir kvörtun Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner