fös 05. júlí 2019 14:48
Elvar Geir Magnússon
Mourinho til Kína?
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho er sagður hafa rætt við ríkasta mann Kína, Hui Ka Yan, um að taka við þjálfun Guangzhou Evergrande af Fabio Cannavaro.

Þá er sagt að Mourinho hafi einnig rætt um að taka mögulega við kínverska landsliðinu.

Hui Ka Yan vill fá Mourinho sem tvívegis hefur unnið Meistaradeildina.

Hann hefur sett gríðarlegt fjármagn í kínverskan fótbolta og hefur hjálpað ríkisstjórn landsins sem leggur gríðarlega áherslu á að landsliðið komist á HM 2022.

Ekki er vitað hvort Mourinho sé áhugasamur um að fara til Kína á þessum tímapunkti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner