Egypski sóknarleikmaðurinn Mohamed Salah gæti misst af leik þjóðar sinnar gegn Suður-Afríku í 16-liða úrslitum Afríkukeppninnar á morgun.
Salah var ekki með á æfingu í dag en hann er veikur. Egypski þjálfarinn Javier Aguirre vildi ekki taka áhættuna á að ástand stjörnuleikmanns síns myndi versna.
Egyptaland hefur sjö sinnum orðið Afríkumeistari og þrátt fyrir að liðið hafi unnið alla þrjá leiki sína hefur það fengið talsverða gagnrýni í heimalandinu. Mörgum Egyptum finnst liðið aðeins skugginn af því liðinu sem vann keppnina þrisvar 2006-2010.

Leikur Egyptalands og Suður-Afríku verður klukkan 19:00 annað kvöld.
Athugasemdir